Jól á Konsúlat
Konsúlat Wine Room er hinn fullkomni staður til að njóta jólanna, hvort sem það er fyrir litla hópa að mæla sér mót og njóta góðra stunda fyrir jólatónleikana eða fyrir stærri hópa að bóka veitingarýmið fyrir dýrindis jólahlaðborð.


Einkasalur um jólin á Konsúlat Wine Room
Njóttu girnilegs matar og jólastemningar á Konsúlat Wine Room - bókaðu salinn fyrir hópinn þinn og veldu á milli fjögurra rétta hátíðarseðils, jólahlaðborðs eða pinnaseðils fyrir standandi veislu.
Í boði öll föstudagskvöld og laugardagskvöld frá 20. nóvember til 12. desember
Fyrir nánari upplýsingar eða bókanir hafið samband á meetings@icehotels.is eða í síma 444 4130


Um Konsúlat Wine Room
Konsúlat Wine Room er staðsett í hinu sögulega Hafnarstræti, í hjarta Reykjavíkur, og býður upp á rólegt og notalegt umhverfi þar sem hægt er að slaka á og njóta.
Á vínseðlinum má finna úrval hágæða vína, ásamt sérvöldum kokteilum og fjölbreyttum smáréttum sem henta vel til að deila eða njóta með drykknum. Hvort sem þú kemur til að fá þér eitt glas eftir daginn eða eyða kvöldinu yfir góðum mat og drykk, býður Konsúlat Wine Room upp á afslappaða og fágaða upplifun í hjarta borgarinnar.
Sjáumst á Konsúlat Wine Room um jólin